top of page

Nú þegar dagur er að kveldi kominn...

Þá stoppar hausinn á mér ekki :) það er eins og sprengja sé fallin og mér tekst illa að átta mig á hvað sprengjubroti ég ætti að dvelja hjá svo að púslið raðist saman. Með öðrum orðum það er svo mikið af hugmyndum að brjótast fram. Þegar ég er í þessum ham hefur reynst mér best að draga fram pensla og róa hugan við að henda litum á striga.



Og að mála með vaxi er einstaklega róandi. Get ekki sleppt að vera að brasa með vaxið :) Hér er er mynd sem ég gerði þegar ég var í svipuðu ástandi og ég er núna. Svo það er aldrei að vita nema ég hendi í fleiri þetta árið. Þetta leyfir mér að staldra við og þá get komið hinnar skemmtilegustu hugmyndir, oft er þetta um blöndun í ilmi sem mér langar að gera og þá er gott að hugurinn sé ekki á hundrað og fimmtíu því þá koma og fara hugmyndir á örskotsstund og mér tekst ekki að fanga þær.





Hér er hægt að skoða það sem áður hefur birst.

Archive

Search By Tags

Follow Us

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page