top of page

Langt síðan síðast...

Já ég hef verið að ná mér upp eftir örlítinn down vetur og hef því ekki verið neitt sérstaklega dugleg að láta í mér heyra. En svona er lífið stundum ekki alltaf dans á rósum:) en það kemur með bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi.

Ég tók mig samt til og gerði lítil kerti því það var orðið fátæklegt í þeirri deildinni hjá mér. Bætti við nýjum tegundum sem ekki hafa fengist í litlum kertum.


og er enn að bæta við en klára það um helgina.

Þið getið kíkt á lítil kerti á síðunni.



 

Við verðum hér heima alla helgina að stússast í kertum enda eru fermingapantanir komnar í hús, ef þið hafið áhuga á því að fá kerti hjá okkur fyrir fermingu þá er um að gera að drífa í því við gerum kerti í næstu viku en svo ekki meir. Við ákváðum að hafa tímamörk á fermingarkertum því

oft er verið að gera þau á síðustu stundu og við viljum ekki vera að vinna kertin undir tímapressu því það kemur niður á vinnunni og oftar en ekki erum við ekki ánægð þó að takist að gera kúnnan ánægðan og ekkert vanti uppá gæðin.


 

Þetta er yndislegur ilmur sem er alltaf jafn vinsæll
Sjávardraumur

En þangað til næst.. kær kv. Helga

Hér er hægt að skoða það sem áður hefur birst.

Archive

Search By Tags

Follow Us

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page