top of page

Ilmkerti eru ekki ....

...bara notuð á veturnar.

Það hefur verið mikið komið til okkar í sumar og verslað, enda opið eftir þörfum viðskipavina á sumrin, þetta er oft skemmtilegasti tíminn að selja kerti því þá koma


úrval af kertum
Gallerýið á Fossheiði 5

þeir sem eru mjög áhugasamir um ilmi og hafa gaman af að koma þar sem hægt er að velja um 80 ilmi í kerti. 

Við höfum notið þess að kveikja á kertum á kvöldin eftir að fór að skyggja, enda kominn haustfílingur í okkur sunnlendinga, með tilheyrandi litadýrð náttúrunnar og haustlægðum.  Veturinn er framundan og við erum að melta og spekúlera í 



nýjum blöndum af ilmum. Við eins og þið verðum leið á að endurtaka sama hlutinn aftur og aftur er nauðsyn að koma með nýja ilmi öðru hvoru. 

Við höfum gaman af að gera ilmi fyrir aðra í kertin, eitthvað sem er þeirra og ekki seld hjá okkur. Oftar en ekki eru það snyrtistofur og þeir sem stunda hugleiðslur bæði einir og með öðrum sem leita til okkar. 

Dagarnir styttast og því er nauðsynlegt að hafa birtu í kringum sig og ekki skemmir það að hafa ilm með fyrir þá sem vilja. Já lífið er ljúft þessa dagana, og gaman að vera á kafi í að gera jólailmkerti eins og enginn sé morgundagurinn. Við munum setja myndir af kertunum jafnóðum og við gerum þau, litirnir eru ávalt rokkandi milli ára svo við notum ekki gamlar myndir til að sýna ykkur kertin.

Þangað til næst kær kv. Helga

Tags:

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating

Hér er hægt að skoða það sem áður hefur birst.

Archive

Search By Tags

Follow Us

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page