Við tökum okkur Jólafrí

Í dag er síðasti dagurinn til að panta á netinu, og um miðnætti tökum við jólakertin af vefsíðunni.

Það verður styttri opnunartími í Gallerýinu næstu viku þar sem við verðum sjálf ekki við vegna persónulegra ástæðna, en verðum með starfsmann sem mun auglýsa á fésbókinni hvenær er opið.

Við óskum öllum viðskiptavinum okkar nær og fjær Gleðilegra Jóla og farsæls komandi árs og vonandi sjáum við ykkur sem flest á nýju ári.

Helga og Steini í Töfraljósum

    0