Svartur Fössari... hmmmm

Var að spá í að gera eins og IKEA í Svíþjóð og hækka kertin í það verð sem gæfi mynd af því hversu mikil vinna og mikil hugsun er á bakvið hvern ilm þennan eina dag til að gefa ykkur smá innsýn í hve mikill tími fer í framleiðslu á hverri einingu sem fer hér í gegn.

Enn þess í stað fór ég í það að koma þessum elskum upp í hilllu

Hér eru komnir kokteil ilmir sem eru geggjaðir, þessi kerti eru með vax blöndu sem er soya og kókosvax. Þau brenna mjög jafnt niður og ég er mjög ánægð með brennsluna.

Mímósan og Pina Colada eru fyrstu ilmirnir í þessari röð, ef viðbrögðin eru góð munum við bæta við þessar elskur.

Svo vorum við mjög kaffiþyrst í vikunni og skelltum í nokkur kaffikerti, þetta er kaffi með Amaretto, mjög ljúfur kaffi ilmur af þessum elskum.

Meira var það ekki í bili en hafið góðann dag, þangað til næst,

Kær kveðja, Helga Elínborg í Töfraljósum

    0