Gleðilega Páska !

Við erum eins og aðrir Íslendingar og ferðumst með hraði innan hús, við höfum alveg

3 herbergi til að skiptast á að vera í plús eldhúsið og þvottahúsið, já okkur leiðist ekki.

Og auðvita varð að styrkja gjörgæsluna með að kaupa bol á húsbóndann, og minna okkur á að stundum er gott að hlýða þeim sem vilja okkur vel.


Við erum alltaf að púsla eitthvað í kertagerðinni, og vonandi sést það eftir páskahelgina á vefnum.

Við tókum okkur til og gerðum slatta af Ugly kertunum okkar í stærri krukkur en við erum vön að hafa, við munum setja það upp á netið fljótlega en þær eru til sölu nú þegar í Gallerýinu hjá okkur.
 


Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska,

þangað til næst kær kveðja, Helga og Steini Töfraljósum

    0