Fermingar ... farin að hugsa fyrir þeim

Við gerum kerti fyrir fermingar, en það þarf að hafa fyrirvara á því, við viljum helst fá sýnishorn af því litaþema sem er í gangi hjá hverjum og einum því við fjöldaframleiðum ekki þessi kerti, hver og ein/n fær sitt kerti.

Hér fyrir neðan koma myndir sem eru bara sýnishorn af lagi og þeim hugmyndum sem hafa komið til til okkar í litum.

Við reynum að gera öllum til hæfis þó stundum geti það verið annsi ögrandi, en alltaf gaman.

Það hafa komið til okkar alskonar hugmyndir í litavali, við reynum að gera okkar besta í að ná þeim.

Þangað til næst, kær kv. Helga

    0