11.11.2010
Nýr söluaðili!
Gjafavöruverslunin Birta á Reyðarfirði fær sendingu í þessari viku til sín. Einnig mun Birta á Egilstöðum verða með kertin til sölu. Fríski er aftur kominn á síðuna og nú í 3 ilmum. Sjávardraum, Skógardraum og Jarðarberjum.
Eins er með reykelsin þau eru til núna, fersk og fín fyrir jólin, nú er hægt að fá Kanil og Jólatrés ilmi í þeim.
2.11.2010
Jólailmir láta sjá sig á síðunni
Jólakertin eru að koma inn á síðunna, fleiri ilmir verða kynntir síðar.
31.10.2010
Nýr söluaðili í Reykjavík
Helga og Erna eru með kertin okkar til sölu hjá sér á Vinnustofunni.
Vinnustofan Hjá Helgu og Ernu ART55 Faxafen 10(austanverður)
11.05.2010
Af gefnu tilefni ætlum við að koma á framfæri
að ilmkerti ehf. er EKKI á okkar vegum.
Hér er addressan að þessu fyrirtæki:
World for 2
Mánalind 12 - 201 Kópavogi Kort
www.worldfor2.is | worldfor2@worldfor2.is
18.04.2010
Sending í Spirit, Akureyri og nýr söluaðili í Hafnarfirði
Ný sending fór á föstudaginn til Spirit, í þeirri sendingu eru vorilmirnir okkar og nýr ilmur Heilsulind, sem er alveg frábær.
Skemman er ný verslun með hönnunarvörur á 2.hæð í verslunarmiðstöðinni Firði við hliðina á Herra Hafnafjörður. Þær stöllur sem reka þessa verslun hafa tekið kertin okkar í sölu og eru þær með breitt úrval af kertunum okkar.
Eins og þið takið kannski eftir þá höfum við breytt léninu okkar og nú heitum við tofraljos.is og innan árs verðum við búin að flytja okkur endanlega yfir á íslensku síðuna.
09.03.2010
Nýir ilmir!
Búin að setja inn nýja ilmi á síðurnar Hér eru margskonar ilmkerti með koteilum og kaffidrykkjum Drykkir og Sumarilmir.
Þar eru komnir inn Pina Colada, Rauðvín og kertaljós, Jarðarber og Kampavín, Sveitarómantík, Vorblómin, fleira bætist við þessa vikuna t.d í slökunarlínuni. Heilsulind er komin á Slökunarsíðuna
09.02.2010
Fréttabréfið komið út!
Fréttabréfið er hægt að lesa hér
Þar er tilboð mánaðarins og vikunar í Kertagallerýinu hér á Fossheiði.
Fylgist grannt með síðunni þar sem uppfærslur ættu að vera tíðar núna þegar við förum að setja inn nýja ilmi.
07.02.2010
Nýir endusöluaðilar
Böggablóm á Eskifirði, Gallerí Tína á Grundafirði, Blómaturninn Ísafirði.
Sendingar fóru á Akureyri í Spirit og í Blómaturninn Ísafirði í síðustu viku.
Nú er verið að undirbúa Valentínusardaginn og mun ástin og ástarilmir vera ríkjandi í KertaGallerýinu á Selfossi næstu daga:).
13.12.2009
Opnunartími Kertagallerýsins fram að jólum og lokadagsetning á pöntunum.
Tökum við pöntunum fram til 17. des. Gallerýið er opið alla daga nema á Þorláksmessu þá lokum við um hádegi, en er opið fram til kl.4 á Aðfangadag.
Allar pantanir sem koma eftir 17. des verða afgreiddar en við getum ekki lofað að þær nái til ykkar fyrir Aðfangadag.
Mikið af nýjum jólailmum sem við höfum ekki haft tíma til að uppfæra á síðuna en eru til í Gallerýinu.
14.11.2009
Jólakertin komin í hillurnar
Mikið úrval af jólailmum í Kertagallerýinu á Fossheiði 5
11.10.2009
Jólakertin komin á síðuna
Við erum ekki komin með þau í hillurnar hjá okkur í gallerýinu, en það er hægt að panta þau á netinu.
22.08.2009
Jæja nú fer að dimma og kertatíminn að hefjast.
Töfraljós hafa ekki hækkað verð frá þvi löngu fyrir bankahrun.
Hráefnið í framleiðsluna hefur á sama tíma hinsvegar hækkað um rúm 100% svo það er ekki umflúið lengur að leiðrétta verðið, þótt lítillega sé.
Meðaltalshækkunin nú er aðeins um 10% og hefur hún þegar tekið gildi.
4.03.2009
Það hefur lítið heyrst í okkur hér, en það fer nú að enda.
Við erum að vinna í alskonar skemmtilegum hlutum og erum að blanda og brugga nýja ilmi. Eins hefur bæst í hópinn á reykelsum ilmir, eins og Ást og Gleym-mér-ei. Eins viljum við benda á Rúnarkertin sem hafa verið vinsæl í fermingagjafir.
9.01.2009
Tilboð
Nú er komið tilboð á síðuna sem gildir út janúarmánuð. Vonum við að sem flestir geti nýtt sér það.
29.12.2008
20.12.2008
Klikkið á jólakveðjuna :) til að sjá kortið í fullri stærð.
19.12.2008
Verslunin Spirit á Akureyri
Er með sendingu á leiðinni norður fullt af jólailmum, Jólin eru að koma, Jólatré, Jól í Sveit, Jólakrydd, Gjafir Vitringanna, svo fáeitt sé nefnt. Með þessum orðum óskum við Norðanmönnum Gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árin sem er að líða.
15.12.2008
Englar og Rósir í Hólagarði
sóttu kerti í morgun og því er orðið gott úrval af kertum hjá þeim.
Vonandi geta þeir sem hafa verið að biðja um kertin til Höfuðborgarsvæðsins tekið gleði sína á ný.
Endilega kíkið á stelpurnar.
11.12.2008
Englar og Rósir í Hólagarði
Hafa tekið kertin okkar í sölu, fyrsta sendingin var að fara til þeirra í dag.
10.12.2008
Við verðum á Gónhól um helgina
Þar verðum við með Ömmu Eldhús og Jólin eru að koma, bæði í litlum og stórum kertum.
Það fer að líða að því að við hættum að taka við pöntunum, vegna þess að við þurfum að reikna með þeim tíma sem tekur að búa til kertið og senda það frá okkur. Hægt verður að panta það sem er til, en það verður að vera fyrir 20. desember. Við munum loka vefversluninni yfir hátíðirnar frá 20. des - 5. janúar 2009
8.12.2008
Við vorum að fá meira af jólailm
Þar á meðal kom sending af Jólin eru að koma sem hefur verið uppseldur hjá okkur. Svo kom ilmur sem margir kannast við Ömmu eldhús. Við látum ykkur vita um þegar við setjum þá á síðuna.
21.11.2008
Ný síða af jólailmum
Kíkið á þessa síðu hér. Við munum bæta við jólailmum mjög bráðlega á þessa jólasíðu. Einn ávöxtur hefur bæst við ávaxtailmina okkar en það er Melóna
19.11.2008
Sending fór í Spirit
í dag, nú fá Akureyringar fullt af jólailmum. Þar á meðal Jólin eru að koma sem er uppseldur hér sunnan heiða.
Blómastúdíó Brynju í Þorlákshöfn fékk sendingu í dag af jólailmum.
18.11.2008
Uppselt í stórum kertum
Sívalingar og stór jólakerti eru uppseld í Jólin eru að koma ilminum. Aðeins lítið til að litlum kertum í þessum ilm. Fyrstir koma, fyrstir fá.
03.11.2008
Fréttabréfið er komið út
Ég sendi fréttabréf út í kvöld, vonandi eru allir á listanum sem ég sendi út en ef ekki þá endilega hafið þið samband.
23.09.2008
Nýr ilmur á síðunni
Vorum að bæta við kaffiilmi á síðuna sem heitir Sælgætiskaffi Meistarans. Þennan ilm er vert að prófa fyrir bæði þá sem elska kaffi ilm og hina sem eru ekki hrifnir af hreinum kaffiilm
19.09.2008
Verslunin Borg í Grímsnesi
Er komin með kertin aftur í sölu, enda kominn kertatími og skammdegið að nálgast.
Við viljum benda sumarhúsaeigendum á að það er gott að hafa þessi kerti í bústöðunum. Þau gefa góðan angan þó ekki sé kveikt á þeim.
17.09.2008
Loksins kemur það
Við erum að senda út fréttabréfið í nótt og á morgun, en svo er tilboð fyrir þá sem koma til okkar í kertagallerýið hér:
Í vikunni 19. - 26. sept. verða öll lítil kerti á tilboði á kr. 250 og öll reykelsi á kr. 150 en aðeins í Gallerýinu að Fossheiði 5.
31.08.2008
Breytingar á verðum og fréttabréf á leiðinni
Eins og allir aðrir þá höfum við orðið fyrir því að öll aðföng til okkar hafa hækkað, við héldum lengi í vonina að þetta myndi lagast en það hefur ekki gerst, svo við neyddumst til að hækka verðið á kertunum þó við hefðum sannarlega ekki viljað gera það.
Á næstunni munu jólailmirnir fara að koma inn, við erum að blanda nýja og spennandi ilmi fyrir jólin og vonum að þeir falli í góðan jarðveg hjá ykkur eins og okkur.
17.08.2008
Hér eru myndir frá okkur í sumar
Hér getið þið skoðað hvað við höfum verið að gera af okkur í sumarfríinu
25.06.2008
Flækingar á ferð
Ég var í smá viðtali hjá Rás 1 og datt í hug að þið hefðuð gaman af að hlusta á það. Smellið hér til að hlusta.
14.06.2008
Sumar á Selfossi
Við verðum á Árborgarsýningunni í Íþróttahúsi Vallaskóla í dag og á morgun. Sýningin er opin frá kl. 11 - 18 báða dagana. Vonum að sem flestir sjái sér fært að kom og kíkja á okkur. Kertagallerýið er lokað á meðan á sýningunni stendur.
21.05.2008
Vilt þú taka þátt í könnun
Hér er könnun sem við í Töfraljósum gerðum og viljum endilega fá sem flesta til að taka þátt í Hér er könnunin
Endilega skráið nafn og netfang því þá er aldrei að vita nema þið dettið í lukkupottinn hjá okkur.
20.05.2008
Við ákváðum
að vera ekki að gera ekki fréttabréf fyrir þennan mánuð vegna anna, en ætlum samt að bjóða ykkur afslátt þeim sem koma í gallerýið á Fossheiði 5 út maí mánuð, en það tilboð hljóðar svona litlu kertin á 200.- kr í stað 500.-kr og sumarilmina í litlu sívalingunum á 1200.-kr í stað 1500.-kr meðan birgðir endast.
23.04.2008
Í dag kom Þyrí frá Handverksgalleríinu á Laugarvatni
og tók stóra sendingu í Galleríið, svo nú geta Laugvetningar og nágrannar tekið gleði sína á ný og farið að versla kertin frá okkur í heimabyggð
19.04.2008
Minna á tilboðið í Gallerýinu
Í vikunni 21. - 27. april. verða öll lítil kerti á tilboði á kr. 200 og öll reykelsi á kr. 200 en aðeins í Gallerýinu að Fossheiði 5.
17.04.2008
Ný sending á Akureyri - Spirit
Já það var að fara sending í Spirit í dag.
03.04.2008
Ný sending í Keflavík - Innrömmun Suðurnesja
Já það var að fara sending í Innrömmun Suðurnesja í dag. Við þökkum Keflvíkingum og nágranna byggðum hversu vel þeir hafa tekið á móti okkur.
02.04.2008
Fréttabréfið kemur út núna um næstu helgi
Með því að fara hér getið þið séð hvaða tilboð er í Apríl, svo setjum við eitthvað meira inn á tilboðsíðuna sem póstlistafólkið fær sent til sín. Svo það er um að gera að skrá sig því þetta er gott tilboð því burðargjaldið er annsi hátt eins þeir kannast við sem hafa verslað við okkur, svo vildu við gjarnan fá að vita hvort þið viðskiptavinir hafið áhuga á að greiða póstburðagjaldi hér á síðunni svo þið þurfið ekkert að greiða þegar pakkinn kemur í hús til ykkar?
Klikkið hér til að svara
07.03.2008
Ný sending á Egilstaði
SS búðin á Egilstöðum fékk nýja sendingu af kertum og reykelsum. Nýja ilmi í kertunum og svo nokkrar gyðjur. Kíkið endilega til þeirra í SS búðina.
29.02.2008
Fréttabréf - frír flutningur
Kemur út á mánudaginn, þar er góð tilboð á nýjum ilmum
Svo verður frír flutningu á kertum í sömu viku og tilboðið er í Gallerýinu það er 10.-16. mars
Í vikunni 10. - 16. mars. verða öll lítil kerti á tilboði á kr. 195 og öll reykelsi á kr. 195 en aðeins í Gallerýinu að Fossheiði 5.
28.02.2008
Nýr söluaðili Töfraljósa
Innrömmunin Suðurnesjum hefur tekið kertin okkar til sölu. Verða kertin í hús hjá þeim á morgun.
19.02.2008
Tunglmyrkvi
Já hann er til hjá okkur og hann ilmar vel.
13.02.2008
Sjafnarblóm
fékk stóra sendingu í gær, þar er margt á fallegt á boðstólum fyrir Valentínusardaginn. Þær eru með ilmpokanna, bæði lavender og gleym-mér-ei, svo eru Gyðjurnar til sölu hjá þeim og eru það frábærar tækifærisgjafir fyrir þá sem eiga allt.
09.02.2008
Vorum að lagfæra síðuna lítil ilmkerti
Ég tók mig til og lagaði síðuna og vona að hún sé aðgengilegri. Ég flokkaði ilminna, þannig að nú skiptast þeir í vor, vetrar, kaffi og ávaxtailmi, og mun uppfæra þá reglulega eftir því sem þeir eru til á lager, þannig að það mun frekar bæta í á næstunni því margir nýir ilmir munu bætast í hópinn. Kíkið á síðuna lítil ilmkerti. Endilega sendið okkur línu hvað ykkir finnst um þessa breytingu
05.02.2008
Frí heimsending í vikunni 11. - 17. febrúar
til að koma á móts við kertaunnendurnar okkar sem ekki komast í Galleríið. Svo er febrúar tilboðið í gangi í Gallerýinu.
Fréttabréf er komið út og tilboðið sést hér á síðunni undir tilboð. Munið því að skrá ykkur á póstlistann.
05.02.2008
Kertasending í Spirit
fór úr húsi hér í morgun og ætti að vera komin á morgun til ykkar Akureyringa, í sendingunni voru kerti og reykelsi
Í vikunni 11 - 17 febrúar verða öll litlu kertin á 195 kr. í stað 500 kr. báðir dagar meðtaldir. Þetta tilboð er aðeins í Gallerýinu hjá Töfraljósum á Fossheiði 5 Selfossi.
Fréttabréf verður sent út bráðlega og þá verða góð tilboð í því. Munið því að skrá ykkur á póstlistann.
05.02.2008
Uppfærsla
Ilmpokar með alvöru jurtum og blómum
Þetta er lavender ilmpoki sem er bróderaður og mjög fallegur.
Síðan er heldur stærri poki með ilminum Gleym-mér-ei.
Fréttabréf verður sent út bráðlega og þá verða góð tilboð í því. Munið því að skrá ykkur á póstlistann.
02.02.2008
Erum að uppfæra síðuna,
Gyðjurnar eru mættar á svæðið
Svo er verið að í að blanda nýjar ilmjurtir sem verða innan skamms á síðunni.
Gamalkunnir ilmir birtast bráðlega en það er Gleym-mér-ei og Skógardraumur. Þetta voru okkar vinsælustu ilmir með Sjávardraumnum þegar við byrjuðum að framleiða ilmkerti.
Fréttabréf verður sent út bráðlega og þá verða góð tilboð í því. Munið því að skrá ykkur á póstlistann.
20.01.2008
Sending af kertum farin í SS búðina Egilstöðum
Á föstudaginn kom í hús á Egilstöðum ný sending af kertum og reykelsum.
13.01.2008
Nú fara að koma
vor og sumarilmir - svo er Valentínusardagurinn á næsta leiti. En áður en hann birtist þá er Bóndagurinn en hann er 25. janúar, því ekki að breyta til og gefa kerti í bóndagsgjöf.
Og við vorum að fá yndislega ilmi í dag, það eru ilmir sem langt er síðan fengust hjá okkur, einn af okkar uppáhaldsilmum kom í dag og var til þess á sínum tíma að ég fór út í ilmkertagerð, en þetta er ilmurinn Gleym- mér- ei það er mikil spenna að fara út og gera kerti með þessum yndislega ilm. Fleiri gamlir ilmir poppuðu upp úr kassanum eins og Skógardraumur þannig að það er um að gera að fylgjast vel með núna og skrá sig á póstlistann.
17.12.2007
Síðustu póstsendingar
fara frá okkur 20. desember, eftir það er einungis hægt að versla af kertin okkar á útsölustöðum og í Gallerýinu á Fossheiðinni.
Við opnum svo fyrir vefverslunina á ný 3. janúar, en Gallerýið verður opið fram á Aðfangadag, svo á milli jóla og nýárs, síðan mun það opna 3. janúar eins og vefverslunin á nýju ári
Nú eru jólailmirnir komnir upp og alltaf fleiri að bætast við. Fylgist vel með Fréttabréfið kemur út núna rétt fyrir mánaðarmót og þá mun verða góð tilboð sem standa í stuttan tíma svo það er um að gera að fylgjast vel með og skrá sig á póstlistann.
25.10.2007
Ný sending,
komin í hús hjá Spirit á Akureyri
Jæja nú er farið að nálgast jólin og við erum kominn með fullt hús af kertum,
Eins og sést hér á myndinni til hægri þá er mikið um að vera hjá okkur, og eru allir velkominir að líta við hjá okkur.
Við fengum aðra
sendingu af jurtum
svo nú er nóg til í bili, en þær fara fljót svo það er um að gera að grípa gæsina. Ilmurinn sem er í þeim er settur í þær hér hjá okkur þannig að þær eru ekki búnar að vera á þvælingi í marga mánuði áður en þær komast í hendurnar á ykkur. Enda er ilmurinn í þeim eftir því.
Á næstunni munum við fara á stað með ilmspray, mun aðalega verða sjávardraumur í því, en við vorum að prufa það í bíl sem við vorum að kaupa og hafði verið mikið reykt í honum en með spreyinu virðist hafa verið komið í veg fyrir að allt angi af reykingalykt.
14.10.2007
Ný sending,
komin í hús hjá Spirit á Akureyri
Nýir ilmir komnir inn í litlu kertunum, fylgist vel með því nú fara jólailmirnir að koma inn.
05.10.2007
Ný sending,
fór á Borg í Grímsnesi :).
02.10.2007
Ný sending,
fór til Sjafnarblóma í gær, mikið af spennandi ilmum og mjög litrík kerti.
24.09.2007
Nýr Ilmur
er Graskerjabaka, þetta er sannkallaður Halloween ilmur. Er bara til í litlum kertum enn sem komið er.
23.09.2007
Tilboð verður í hjá okkur vikuna 1 - 7 október og báðir dagar meðtaldir
Þetta er í litlu kertunum en þau verða á kr. 190.- í stað kr. 500.-.
Þetta tilboð er eingöngu hér í Galleríinu á Fossheiði 5. Við hvetjum Selfossbúa og nágranna að líta til okkur, eins þá sem leið eiga á Selfoss. Opnunartíminn er frá kl. 11 - 22 alla daganna
11.09.2007
Nýtt í reykelsum
Nýir ilmir í reykelsum Patchouli,
Sandalwood Tilboðið í september er að klárast, aðeins fáir ilmjurtapokar eftir. Svo grípið tækifærið NÚNA það er ekki víst að við fáum meira af jurtum fyrir jólin
01.09.2007
Tilboð í september
Nú er komið að því að tilboðin fara kom hér á síðuna, þeir sem eru skráðir á póstlistan fá fleiri tilboð en fréttabréfið kemur út núna í byrjun september, svo það er um að gera að skrá sig á póstlistan. Í þeim tilboðum gildir sú regla fyrstur kemur fyrstur fær.
28.08.2007
Við höfum opnað Galleríið
Enn sem komið er, eru veikindi í gangi en til að koma til móts við viðskiptavini okkar höfum við aftur opnað galleríið að Fossheiði 5 og er það opið frá kl. 14 til 21 ef þið viljið koma á öðrum tíma hafið þá samband í síma 893 6804
15.11.2006
Starfsemi í lágmarki þessa dagana
Vegna tímabundina veikinda hefur verið dregið úr starfsemi Töfraljósa sjá Bloggið
Hér verður allt sem er nýtt á síðunni
Við munum færa hér alla nýju vörurnar sem koma á markað fyrir jólin
Okkar markmið er að þú viðskiptamaður sér ánægður
Hér er aðaláherslan á persónulega þjónustu og viljum við gjarnan fá athugasemdir sem þið viljið koma á framfæri, okkur finnst gott að fá gagnrýni.
Hér heima er verslun
Við höfum innréttað í kertagerðin smá verslun sem hægt er að koma í alla daga vikunar. Frá kl. 14 - 21, ef þið viljið koma á öðrum tíma þá hafið þið samband í síma 893 6804